þriðjudagur, júlí 04, 2006

Allt að gerast

Já stelpur nú er allt að gerast, við erum allar mættar á síðuna. Ef við ætlum að taka bílaleigubíl þá þurfum við að ákveða það áður en við förum svo við getum fengið einhvern díl, það er ekki hægt að fá díl nema maður panti fyrir fram. Þetta hönk er alveg að gera það gott, ég reyndar finn engar myndir af honum berum að ofan sem eru ekki síðan hannn var fermdur. En ég finn hana hafið engar áhyggjur.
Ég fór að skoða litla frænda minn í gær og hann er alger dúlla, allri að segja að hann sé risa stór en mér finnst hann pínu lítill. Ég verð að kaupa eitthvað fallegt handa honum í útlöndum. Matta sagði mér það í gær að það væri 30 stiga hiti þar sem við erum að fara, vona að það verði þanni ennþá þegar við förum. Ég get ekki beðið ég er svo spennt. Annars er svo sum ekkert að frétta núna geri ekki neitt nema að bíða þangað til við förum tími ekki að eyða neinu til að eiga sem mestan pening. Annars verð ég víst að halda áfram að vinna bæ í bili.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vúhhh myndó myndó, þú verður að finna mynd þar sem hann er í litlum fötum (ef ekki verðum við bara að hafa upp á honum og taka hana sjálfar)
Já það er allt að gerast, nú fer ég að verða tilbúin að fara, búin að fara í útlandaklippingu og allt á bara eftir að pakka.
Var samt næstum fyrir sjokki, því vísað var útrunnið (fattaði það bara þegar bankinn sendi mér nýtt)svona er ég nú gáfuleg.

Nafnlaus sagði...

24 stiga hiti kl 10:18.
Ohh var brjáluð yfir endinum á Prison Break fannst hann ömurlegur, að skilja mig eftir í svona mikilli spennu.
Travellerschecks - check...hehe