fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Betra SEINT en ALDREI


Jæja hvað er svo að frétta af ykkur öllum. Það er þokkalega langt síðan ég hef kíkt hingað inn enda var ég búin að gleima passwordinu mínu. Þokkalegt það!!! En það er annars allt gott að frétta af mér, brjálað að gera í skólanum. Djammið er búið að vera þokkalegt var samt betra í fyrra en maður fær ekki allt. Mér til mikillar undrunar þá mætti ég hérna upp í skóla að læra og hver heldur að hafi labbað inn engin önnur en hún Guðríður Sturludóttir (nýbúi). Já þetta var nú aldeilis skemmtilegt, hún er bara hætt að reykja í þrjár vikur og vitir menn búin að bæta á sig einum 3 kílóum. Henni veitti nú ekki af þeim. En þessa dagana er skólinn að drepa mig það er svo mikið að gera. Síðan svona til að fara úr einu í annað þá erum við búin að kaupa okkur farið til Riga í maí og ég get ekki beðið. Það verður örugglega ekkert smá gaman. En nú þarf ég að fara að halda áfram að læra áður en Mæja kemst að því að ég er bara að skrifa á bloggið mitt í staðin fyrir að vera að gera ritgerina með henni:)
Ég varð að láta eina mynd fylgja með, Pink hún er í miklu uppá haldi þessa dagana.