föstudagur, júlí 20, 2007

N.E.R.D.


No one ever really dies. Það er massa hljómsveit og hann Pharrell Williams er meðlimur og eins og sést þá er hann helvíti myndarlegur. Hann mun vera næst hönk vikunar og ég ætla að reyna að hafa mynd á hverjum degi núna, en það er búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki haft tíma til að vera að blogga. Það verður samt lika örugglega mikið að gera í næstu viku því þá fer Arna í frí en ég skal gera mitt besta. Annars er þetta sumar alveg að verða búið og ég hef ekki gert neitt að viti og geri líklega ekki en þannig er það nú bara.

Það er komin helgi og ég ætla bara að vera heima og slappa af og jafnvel klára að mála húsið heima og svona, allavega ekkert djamm um þessa helgi. Þessi vika er búin að vera ekkert smá fljót að líða og ég held það sé vegna þess að ég fór á date með Heiðrúnu og svona, maður verður að gera eitthvað til að tíminn líði. Svo ætla ég að fara á Nings í dag og fá mér hádegismat og slappa af í smá stund, það er tilbreyting í daginn:)

Svo er ég að fara í afmæli í kvöld til Mínu frænku og fá mér kökur og svona, það verður gaman að sjá familyuna. Annars er þetta allt sem gert verður um helgina og borða þynkumat með Heiðrúnu eftir Reunionið hennar:) En nóg í bili, góða helgi og heyrumst.

þriðjudagur, júlí 17, 2007

Meistari áskorananna!!!


Wo ég er allt of góð í þessum leik. Ég stenst allar áskoranir sem sendar eru á mig. En Guðrún ég er löngu búin að hafa litla bróðirinn í Heroes hann var fyrstu í sumar. En Edward í American History X er nokkuð góður þannig hægt að skoða það. Koddu með dæmi um einhvern sætan svartan gaur annan en Snoop Dog þá skal ég hafa hann.

Annars er bara gott að frétta, rosa heitt í vinnunni og ég frekar löt. Ætla í bíó í kvöld með Heiðrúnu að sjá Harry Potter, hlakka feitt til.

Var svona frekar ölvuð um helgina en skemmti mér bara nokkuð vel og kom að sjálfsögðu heim undir morgun eins og alltaf. En það er besti tíminn til að fara að sofa á:)

Hef reyndar ekki mikið meira að segja að svo stöddu en að ég RÚLLA UPP ÞESSUM ÁSKORUNUM!!!!