föstudagur, maí 25, 2007

Jæja þá er ég mætt á nýjan leik


Þá er ég mætt í vinnuna og þá er nú einmitt tíminn til að blogga aðeins þegar tækifæri gefs. Ég lofa að vekja þessa síðu til lífsins á ný og eins og síðasta sumar ætla ég að vera með hönk vikunar og restina af þessari viku og næstu viku verður það hann Milo Ventimiglia sem leikur sæta gaurinn í Heroes. Hann leikur einnig í nýju Spidermann myndinni og er að sögn þeirra sem hafa séð myndina ekkert smá myndarlegur í henni. En Meira um hann Milo hann er fæddur 8. júly 1977 í Anaheim Californiu í Bandaríkjunum. Hann er 1,75 cm á hæð. Hann er búin að vera grænmetisæta síðan í barnæsku. Þegar hann var lítill klæddu systur hans tvær hann upp sem Madonnu. Hann lék í Gilmore girls. Annars er hann alveg að meika það í Herose að mínu mati og ég er alveg að fíla þann þátt í tætlur. Ég bíð spennt alla mánudaga eftir því að hann byrju og verð svo öruggleg ekkert smá fúl þegar hann endar. En nóg um það.

Annars er búið að vera geðveikt gaman hjá mér að undanförnu, ég fór til Riga í Letlandi með bekknum mínum núna í byrjun maí og það var ekkert smá gaman. Hægt að sjá myndir og lesa bloggið okkar á www.nemar.bloggar.is endilega kíkja á það.

En ég verð fyrir mitt leiti að segja að ég fór þarna út og hélt að það væri mikil fátækt þarna og svona (sem það er) en þetta er ekkert smá falleg borg og ég mæli með því við alla að skreppa þarna út því það er ekkert smá gaman að kynnast samfélagi sem er svona ólíkt okkar. Ég hef komið á marga staði en þetta er hreinasta stórborg sem ég hef komið til það var ekki neitt rusl á götunum og rusladallur í 10 skrefa fjarlægð frá næsta. Mér fannst þetta snild. Byggingarnar þarna voru ekkert smá flottar og sumar voru síðan 1990.

En núna er ég bara að vinna, skráði mig á línuskauta námskeið til að læra aðeins á þessa skaut sem ég er búin að eiga í 3-4 ár eða meira man það ekki. Síðan skráði ég mig á ljósmyndanámskeið líka, allt að gerast. Ég ætla að vera eins bissy í sumar og ég get þá líður það fyrr og ég get farið aftur í skólan:)

En nóg í bili ætla að vinna smá og ef ykkur dettur eitthvað hönk í hug karl eða kona þá endilega koma með tillögur.