mánudagur, júní 16, 2008

Góð helgi


Já það er ekki hægt að segja annað en það þetta hafi verið nokkuð góð helgi, ég útskrifaðist og var hæst í bekknum í þokkabót. Verð að segja að þessi myndi er mjög einkennandi fyrir helgina:) hehe En alla vega þá var bara rosa gaman og við fórum út að borða á RUB23 og ég mæli sko með honum. Þetta er nýji staðurinn þar sem kaffi karolína var og það er mest megnis fiskur í boði og það er geggjað. En allavega góð helgi og ég vil þakka kærlega fyrir mig, allar hamingju óskirnar og gjafirnar, takk takk takk

föstudagur, júní 06, 2008

Komst inn í skólann


Ég er ekki að grínast ég komst inn í kvikmyndaskóann. Ég er að fara að flytja til Reykjavíkur, vá ég trúi því ekki. Það verður örugglega geggjað gaman. En annars er þetta búin að vera ansi þreitt vika, ég er ekkert smá löt þessa daganna. En ég ætla að fara að breyta því. Svo er ég að útskrifast næstu helgi og svona og það er víst brjálað að gera hér næstu helgi, bíladagar og einhver tónlistar hátíð (man ekki hvað hún heitir), en allavega ef einhver er að spá í að kíkja norður næstu helgi þá er nóg um að vera og Guðrún það var verið að spá í að setja niður plöntur þessa helgi líka ef það vekur einhvern áhuga:) hehee

En vá ég er ekki að trú þessu nú þarf ég að fara að leita mér að íbúð í borginni, ef einhver veit um eitthvað láta mig þá vita:) vá ég er dálítið spenntur verð ég að segja þetta á eftir að verða áhugavert. Hlakka til að hanga alltaf með þér Guðrún nágranna kona:) hihihi

Hvað um það ég þarf að fara að gera eitthvað annað en að hugsa um þetta endalaust, vinnan vinnur sig víst ekki sjálf (skil þetta ekki, búin að reyna allt). Góða helgi allir saman og hlakka til að sjá ykkur sem fyrst.

þriðjudagur, júní 03, 2008

Er þetta flottasti bíll í heimi eða?


Þetta er ekki grín en þetta er bílinm sem mig langar að eignast, Ford Shelby GT500. Geggjaður... nei bara svona það er að nálgast útskrift og svona, alltaf til í að fá svona í útskriftargjöf. En annars bara nokkuð góð helgi, allt gekk upp og ég, Heiðrún og María elduðum gúllassúpu á sunnudaginn, ekkert smá góð. Hef eiginlega ekkert að segja þannig ég minni bara aftur á þennan fallega bíl, allir að dást að honum:) hummmm

föstudagur, maí 30, 2008

Póker í kvöld


Góða kvöldið gott fólk og gaman að geta sagt ykkur frá því að ég er að fara að hitta hana Mariu og jafnvel hann Óla, og við erum að spá í að slá kvöldinu upp í kæruleisi og spila póker. Hver veit nema að það verði bjór í boðinu en allavega þá verður líklega voða skemmtilegt. Það er búið að vera frekar leiðinlegt í vinnunni í dag og ég svo álpaðist ég til að segjast ætla að taka myndir í einhverri heimskri fermingarveislu, ég hata fermingaveislur... en það er ekki það versta ég álpaðist líka til að segjast geta unnið fyrir hann Gumma á sunnudaginn en vá hvað ég er ekki að nenna því, þarf að fara á fætur eld snemma því ég á að vera mætt kl 8. Ég var búin að segja Gumma að mig langaði að vera með mömmu og pabba í sumarbústað og hann ætlaði að vera rosa góður og koma þá seinnipartinn, hann ætlar að koma kl 14 og vera þá til svona 17 það er rosa sanngjarnt, alveg skiptum deginum jafnt. Annars er þetta ekki neinum að kenna nema mér að vera svona vitlaus að vinna fyrir aðra, maður á ekki að gera það, því þeir vinna ekki fyrir mann senna... ekki satt:) En allaveg vonanadi verður gaman í kvöld og allir skemmta sér vel:) góða helgi P.S. Guðrún takk fyrir allar girnilegu réttina inná síðunni þinni gaman að komast í svona lagað:)

fimmtudagur, maí 29, 2008

Helgin í nánd


Ekkert smá sætur kisi. Já það verður að segjast að ég er farinn að hlakka til helgarinnar en þar sem ég er örugglega að fara að vinna eitthvað og þarf að skreppa í fermingu þá lítur helgin ekki alveg jafn vel út og hún ætti að gera. En hvað um það alltaf að gera það best úr öllu og reyna að hafa það gott. Ég er að spá í að kíkja á Guggu mína í kvöld og jafnvel taka í spil með henni eða eitthvað álíka skemmtilegt. Dagurinn í gær var ekki alveg jafn skemmtilegur og hann leitu út í fyrstu þar sem allt of mikið var að gera hjá mér undir lok vinnudagsins. Ef ég má vera alveg hreinskilinn þá finnst mér bara ekkert rosalega gaman að vinna og ég er alltaf að hugsa um það hvað það væri nú gott að vera í skólanum núna, hitta alla vinina og fara saman í mat í hádeginu og bara svona allt þetta sem maður gerir skemmtilegt í skólanum, þannig ég er hér með búin að lýsa því yfir að ég er ekki komin með leið á því að vera í skóla...:) Annars er alveg ágætis fólk að vinna með mér, ég sakna pínu slúðursins á eftrihæðinni en það er mun meira aksjón hér niðri og þar á ég frekar heima. Vonanid fæ ég góð laun þannig að ég þurfi ekki að hætta að vinna hér og fara að vinna hjá pabba, sem væri jú sweet. En það kemur allt í ljós sem fyrst vonandi, allaveg hvað sem verður verður fínt. Verð að fara að hætta og halda áfram að vinna eitthvað:)

miðvikudagur, maí 28, 2008

Sumar og sól


Já staðfestar fréttir ég er að fara að útskrifast þann 14. júní:) hvern hefði grunað að þetta ætti mér eftir að takast. En hvað er með þetta veður, ekkert smá gott 23°, og ég þarf að sitja hérna inni á þessari skrifstofu og vinna í stað þess að vera í sundi eða bara í sólbaði með henni mömmu gömlu sem er að sjálfsögðu í fríi þessa daganna, hún finnur á sér þegar svona veður er í námd:) Svo eru þau öll að fara í sumarbústað um helgina og ég er búin að lofa Gumma að taka myndir fyrir hann í fermingarveisluni hjá stráknum hans, og svo var hann búin að biðja mig um að vinna á sunnudaginn fyrir sig og ég er eiginlega ekki að nenna því, væri alveg til í einn dag í búsaðnum með karli og kerlingu. Sjáum til hvernig fer. En ég er að spá í að hætta núna og fara og standa í sólinni í smá tíma kannski fæ ég eina freknu hver veit... mjög líklegt (Rauðhaus)

mánudagur, maí 26, 2008


Góðan dag, mín bara að farinn að leika sér á blogginu sínu aftur. Gaman af því. En annars þá er allt gott að frétta, búin í skólanum og búin að ná öllu, þvílíkt klár og ánægð með mig. Svo fór ég í viðtal í kvikmyndaskólanum um daginn og ég held bara að ég sé nokkuð bjartsýn á að ég komist í þann skóla, hlakka til. Annar var rosa stuð um helgina, evróvision var bara eins og maður bjóst við, við unnum ekki (og hefðum heldur ekki viljað það). En djammið var gott gaman að hitta alla, djammaði með Söndru loksins og svo var ég bara með gáfnaljósinu í bekknum henni Maríu (hún er sko hæst í blekknum :) ) Ég er að spá í að skella mér með henni Matthildi frænku minni aftur til Genf í sumar og þá vorum við að spá í að vera aðeins meira upp í fjöllunum og vera í vatnsrennibrautagarðinum og leika okkur, það verður vonandi gaman. Svo var ég að frétta það að Sveinn og Binna sistir voru að kaupa sér hús á Spáni sem ég verð að fara og skoða við tækifæri, og sem fyrst helst. Byrjuð að vinna á Bílaleigunni en með smá tvist núna er að vinna niðri við að leigja út bíla og vera á rúntinum og svona, það á bara nokkuð vel við mig:) Annars bara vona ég að einhver lesi þetta rugl í mér og geti haft gaman af en ef ekki þá bara allt í góðu. Jæja að lokum vill ég bara minna á það að Indiana Jones er í bíó og ég er að fara að fara í bíó á hana og vona að sem flesti fari að sjá hana, meðfylgjandi mynd er einmitt af honum Shia LaBeouf sem leikur í Indiana Jones.... FALLEGUR

þriðjudagur, maí 20, 2008

Það er komið sumar


Ég er ekki að grínast en ég er að útskrifast úr Háskóla, ekkert grín. Bara gaman. Verð eiginlega að minna alla á að halda áfram að horfa á House M.D. sem er jú skemmtilegustu þættir sem ég hef séð, maðurinn er náttúrlega tær snild. En annars er allt gott að frétta, ég er að fara suður í viðtal fyrir kvikmyndaskólanna, vonandi kemst ég inn. Svo erum ég og Matta að spá í að fara aftur til Genf í Ágúst og vera þá slatta í rennibrautagarðinum, og upp í fjöllunum. Geðveikt... Svo er það bara að býða eftir útskriftinni þann 14. júní það verður vonandi fjör og gaman þá, allaveg drukkið nóg. Annars gaman að vera komin aftur og verðum í bandi.