miðvikudagur, júlí 05, 2006

6 vinnudagar þangað!!!

Já það eru bara 6 vinnudagar og 2 helgardagar þangað til ég fer út. Mér líst vel á að fara í bátsferð um vatnið með öl í hönd. Vá ég veit ekki hvað ég á að segja lengur ég er að verða svo spennt.
En þetta var rosalegur Prison Break þáttur í gær og það fór geðveikt í mig þegar hann endaði. Ég var samt búin að vera að skipta á aðrar stöðvar ég var svo spennt yfir þessu að ég gat ekki horft. Svo var supernatural allt í lagi líka, er að vísu farinn að þynnast aðeins. Ég fer ekki í klippingu fyrr en á næsta þriðjudag allt of langt þangað til, og svo langar mig svo í ný föt og mig langar í nýja skó, já og ég er að fara til útlanda til að kaupa þetta allt vey...
Og svo er það helgin, hvað á að gera um helgina það verður að vera eitthvað sem lætur tíman líða hratt og er skemmtilegt. Hugmyndum er vel tekið. En já ætla að halda áfram að láta timan líða lötur hægt í vinnunni og halda áfram að vinna, vonandi hef ég eitthvað krassandi að segja ykkur í síðar. Og svo mynni ég á áfram PORTÚGAL...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þú og fóbolti,ég er með andlit maska þú verður rósagoður blaða mður.

Nafnlaus sagði...

Á bara að snurfusa skvísuna?
Hlakka bara til að fara í góða veðrir er ekki alveg að fíla að vita ekki hvort það verður snjókoma, rigning eða stormur á morgnanna þegar ég vakna.
En finnurður enga fáklædda mynd af manninum?