
Já það er sko alveg að koma helgi og ég veit ekki ennþá hvað ég ætla að gera um helgina, en líklega tek ég smá tjútt. Annars eru þau gömlu farinn til Reykjavíkur og kellingin er bara ein heima í kotinu, ekki leiðinlegt það. Svo er það nátturlega að reyna að láta tíman líða eins hratt og hægt er þanngað til ég kemst til Spánar. Ég á eftir að ræða við hana Matthildi um að fá gista eina nótt hjá henni og prinsessunni, hlakka svo mikið til að sjá hana. En annars er þetta búið að vera frekar leiðinlegur dagur, næstum jafn leiðinlegur og leikurinni í gær sem ég ætla aldrei aftur að tala um, nema þá að dásama hann Ronaldo minn. En já ekkert að gerast, langar að fara heim og gera eitthvað skemmtilegt. P.S. ekki fara í pokkun og litun í Abaco það kostar heilar 3700.- kr, farið frekar á Arona það kostar ekki nema 3000.- kr og svo er líka miklu skemmtilegra fólk þar. En já nenni þessu ekki bæ.
1 ummæli:
Aldeilis magnað að þú sért farin að skrifa hérna aftur, þá er eh skemmtilegt til að kíkja á í vinnunni.
Ég er einmitt hundapassari um helgina þannig að ég er lika ein heima. JEY
En heyri í þér í kvöld, gerum kannski eitthvað.
kv. Heiðrún
Skrifa ummæli