
Ekkert smá sætur kisi. Já það verður að segjast að ég er farinn að hlakka til helgarinnar en þar sem ég er örugglega að fara að vinna eitthvað og þarf að skreppa í fermingu þá lítur helgin ekki alveg jafn vel út og hún ætti að gera. En hvað um það alltaf að gera það best úr öllu og reyna að hafa það gott. Ég er að spá í að kíkja á Guggu mína í kvöld og jafnvel taka í spil með henni eða eitthvað álíka skemmtilegt. Dagurinn í gær var ekki alveg jafn skemmtilegur og hann leitu út í fyrstu þar sem allt of mikið var að gera hjá mér undir lok vinnudagsins. Ef ég má vera alveg hreinskilinn þá finnst mér bara ekkert rosalega gaman að vinna og ég er alltaf að hugsa um það hvað það væri nú gott að vera í skólanum núna, hitta alla vinina og fara saman í mat í hádeginu og bara svona allt þetta sem maður gerir skemmtilegt í skólanum, þannig ég er hér með búin að lýsa því yfir að ég er ekki komin með leið á því að vera í skóla...:) Annars er alveg ágætis fólk að vinna með mér, ég sakna pínu slúðursins á eftrihæðinni en það er mun meira aksjón hér niðri og þar á ég frekar heima. Vonanid fæ ég góð laun þannig að ég þurfi ekki að hætta að vinna hér og fara að vinna hjá pabba, sem væri jú sweet. En það kemur allt í ljós sem fyrst vonandi, allaveg hvað sem verður verður fínt. Verð að fara að hætta og halda áfram að vinna eitthvað:)
2 ummæli:
Haha, grunti mig ekki að þú værir farin að skrifa hérna aftur.
Bara gaman að því.
Til hamingju með það að vera búin að ná öllu og geta útskrifast. Eintóm gleði bara.
Hehe loksins var ég á undan þér Heiðrún - ekki að kommenta hér heldur að finna bloggið þegar gamla byrjaði aftur.
Ok hún benti mér reyndar á það en samt!
Skrifa ummæli