mánudagur, maí 26, 2008


Góðan dag, mín bara að farinn að leika sér á blogginu sínu aftur. Gaman af því. En annars þá er allt gott að frétta, búin í skólanum og búin að ná öllu, þvílíkt klár og ánægð með mig. Svo fór ég í viðtal í kvikmyndaskólanum um daginn og ég held bara að ég sé nokkuð bjartsýn á að ég komist í þann skóla, hlakka til. Annar var rosa stuð um helgina, evróvision var bara eins og maður bjóst við, við unnum ekki (og hefðum heldur ekki viljað það). En djammið var gott gaman að hitta alla, djammaði með Söndru loksins og svo var ég bara með gáfnaljósinu í bekknum henni Maríu (hún er sko hæst í blekknum :) ) Ég er að spá í að skella mér með henni Matthildi frænku minni aftur til Genf í sumar og þá vorum við að spá í að vera aðeins meira upp í fjöllunum og vera í vatnsrennibrautagarðinum og leika okkur, það verður vonandi gaman. Svo var ég að frétta það að Sveinn og Binna sistir voru að kaupa sér hús á Spáni sem ég verð að fara og skoða við tækifæri, og sem fyrst helst. Byrjuð að vinna á Bílaleigunni en með smá tvist núna er að vinna niðri við að leigja út bíla og vera á rúntinum og svona, það á bara nokkuð vel við mig:) Annars bara vona ég að einhver lesi þetta rugl í mér og geti haft gaman af en ef ekki þá bara allt í góðu. Jæja að lokum vill ég bara minna á það að Indiana Jones er í bíó og ég er að fara að fara í bíó á hana og vona að sem flesti fari að sjá hana, meðfylgjandi mynd er einmitt af honum Shia LaBeouf sem leikur í Indiana Jones.... FALLEGUR

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég fatta ekki Shia Lebouf og ég næ heldur ekki upp í þetta nafn.
En ég er viss um að Indí er fínn og ég ætla að sjá hana í bíó. Alveg kominn tími á rómantíska bíóferð hjá gömlu hjónunum.