föstudagur, ágúst 03, 2007

Versló !!!!


Loksins er þessi dagur komin og ég er að springa úr gleði og dagurinn er nú ekki að líða neitt rosalega hratt. Ég fór í ríkið í gær og verslaði fyrir helgina það var gaman. Frétti svo hjá mömmu að hún hefði leift Heiðdísi systir að vera í sveitinni um helgina en ég sagði sko að ég hefði beðið fyrst og spurt alla í fjölskyldunni, þannig ég á réttinn. Fyrstur kemur fyrstur fær:) Allavega mamma ætlar að segja henni að við ætlum að vera þarna ekki hún.

Annars var ég að spá í að kíkja út á djammið með Söndru í kvöld, vonandi verður það gaman. Hlakka pínu til og svo er ég ekki að nenna bæjar djammi því ég er svo ákveðinn í útileigunni minni:) en þetta verður fínt.

Það er ógeðslega óholt í matinn í dag (Berneshambó) og ég ætla svo að fá mér að það er ógeðslegt. Og mér verður örugglega óglatt eftir hann en hann verður góður. Það er frekar lítið að gera í vinnunni en ég get bætt úr því þegar ég nenni og geri það líklega þegar ég er búin að skrifa þetta bull:) ok

En Brad Pitt varð fyrir valinu sem hönk verslunarmannahelgarinnar. Verð að segja að hann er ansi fine á þessari mynd. Njótið hans vel og hafið það gott um versló. Ekki djamma of mikið og gangið hægt um gleðinnar dyr.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já þessi getur nú alveg verið einn þarna um helgina, ég er ekki frá því að hann sé eins og gott vín og verður vara myndarlegri með aldrinum (hvern grunaði að hann gæti það).
Líst vel á hann.
En já Heiðdís getur bara verið á fjölskylduhátíð í bænum um helgina og leyft unga fólkinu sem hvergi má vera, vera í sveitinni ;)

Nafnlaus sagði...

hehemm þið eruð nú allar eldri en 23 ára og þurfir þar að auki ekkert að tjalda hehehe.
En já er ekki frá því að Pittarinn sé að redda þessum þriðjudegi og endilega leyfðu honum að vera hönk út vikuna svo það verði gaman hjá okkur.

Skora á þig að finna mynd af honum að reykja með sígarettuna á milli löngutangar og baugfingurs (ég lofa að það er ekki jafn erfitt og það hljómar)