þriðjudagur, ágúst 21, 2007

Þessi vika verður eilífð


Ég er að springa ég nenni ekki að vinna meira, talandi um að vera löt. Get bara ekki beðið eftir því að byrja í skólanum. Annars er bara fínt að frétta ennþá bara ánægð með reykjavíkur ferðina. Reyndar er tansi núna að bögga mig þannig ég verð að fara og láta hann líta á geiflurnar. Það á nú eftir að kosta annan handleggin, þannig það var gott að ég var búin að eiða öllum peningunum mínum i Reykjavík:)
Mamma tók bara vel í það að ég fengi mér nýjan bíll hjá bílaleigunni. Þannig þá er bara að tala við pabba og heyra hvað hann hefur að segja. Já það væri æði ef þetta gerðist.
Guðrún ég skal skoða myndir af honum Bond, en ég er eiginlega búin að finna þann sem á að vera loka hönkinn:) en það má alltaf vera með alla agna úti. Já það er lika aldrei að vita nema maður verði virkari í skólanum í ár, hvað bloggið varðar. Allavega þarf ég að vera duglegri á myspace fyrir hana Sigrúnu og Haffa. Talaði einmitt við hann í morgun, hann var bara hress og hlakkaði til að byrja í skólanum. Oh ég öfunda þau að vera í útlöndum. Og ég á eftir að sakna þeirra í skólanum. Þetta verður öðruvísi ár, en vonandi skemmtilegt. En bæ þarf að vinna.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sigrún og Haffi hver?? ;)

Annars er annar sem mig langar að sjá - hann Eric Dane úr Greys Anatomy!! Hann er sko really steamy ;)

Nafnlaus sagði...

hey sæta, er einmitt líka að fara til tannlæknis sem kostar annan handlegginn og rúmlega það!!! en allavega kvitt kvitt ástin mín, love you;)!!