fimmtudagur, ágúst 16, 2007

Aftur að koma helgi


Ég held ég verði bara róleg um helgina eða það er allavega planið. Svo er það að reyna að plana party fyrir bekkin áður en skólinn byrjar og ég er ekki fá því að það ætti að heppnast. Annars er ekkert að frétta, bara frekar leiðinlegir dagar búnir að vera undanfarið. Svo er nú hún Erla frænka að fara að byrja að vinna með mér í smá tíma, voða fínt. Arna er hætt og er að byrja í skólanum, ég er geðveikt öfundsjúk. Magnea er að fara til Danmerkur í viku eða meira og ég er líka öfundsjúk út í hana. Annars er ég að fara að byrja í skólanum og er að fara suður á tónleika með Heiðrúnu á Cris Kornell tónleika. Vey það verður geðveikt gaman.

Hef svo sum ekkert merkilegt að segja ekkert að gerast sem er skemmtilegt, 7 dagar eftir í vinnunni og þá byrjar skólinn:) hlakka svo til.

Hlakka líka til að fara til Reykjavíkur og kaupa mér fallega hluti í borginni. Annars verð ég að fara að vinna og eitthvað. En það eru bara 2 hönkar eftir og það verður spennandi að sjá hverjir það verða. En bæ þangað til á morgun.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er mjög ósátt að Pittarinn fékk ekki að vera lengur, eins uber sexy og hann er.
Vill ekki þessi Chris Cornell vera hönk vikunnar?? er hann kannski ekkert hönk?
Skora á þig að enda þetta með gellu - eins og síðasta vetur þegar hún Salma sæta fékk að vera í nokkra mánuði.