
Góðan og blessaðan daginn og afsakið biðina, það er búið að vera rosa mikið að gera hjá mér þessa dagana. En þessari ákorun hennar Guðrúnar verð ég að taka og ég verð að segja að mér hafi tekist ágætlega upp en þið segið mér, það sést ekki í geirvörtur og hann er ekki ber að ofan og ekkert glas í hendinni á honum:) ég stóð mig bara vel ekki satt.
Það er alveg að koma brúðkaup og ég er ekki búin að kaupa mér neitt fallegt til að vera í en ætli ég verði ekki bara í einhverju þæilegu svo ég geti skemmt mér eins vel og hugsast getur. Kannski ég skreppi í bæinn og skoði mér bol og pils eða eitthvað en er ekki búin að ákveða mig. Veit ekki hvot ég nenni að vara í pilsi og veit ekki hvort það eru til flott pils í þessum bæ. Heiðrún ef þú nennir viltu koma með mér í bæinn?
Allavega þá er ég ennþá að bíða eftir þrífætinum mínum en ég fékk linsurnar strax, ekki nógu ánægð með þetta. En hann er kominn til landsins þannig að ég þarf bara að bíða þangað til hann kemur heim til mín. En nóg í dag verð að fara að vinna:)
4 ummæli:
Jú að mínu mati stóðstu þessa áskorun Guðrúnar með príði.
Já ég er alltaf til í bæjarferð, láttu mig bara vita þegar þú vilt fara.
Mig vantar líka eitthvað fallegt fyrir brúðkaup.
Ný áskorun: Ekki ber að ofan eða með glas í hendinni í raunverulegu umhverfi, ss. ekki stúdíó-myndatöku-uppstillingar.
Geturu það?
á þetta ekki að vera comfý brúðkaup, gallabuxur og lopapeysa svo engum verði kalt:)
Jú þetta er svokallað "brúðkaup með frjálsri aðferð" ;)
Skrifa ummæli