föstudagur, júlí 13, 2007

Nýtt hönk:)


Já eftir að hafa hangið á mér og beðið mig endalaust um að fá að vera hönk vikunar, gat ég ekki annað en leift honum að vera hönk. Enda er hann nú með nafn sem gefur til kynna að hann sé nú smá hösler:) :) En þetta er hann Gerald vinnufélagi minn. Verð að segja að hann er nú bara nokkuð góður í Zoelander svipnum.
En ég fékk tilboð í svona sæta kisu í gær og ég er alveg að deyja mig langar svo í hana, en að sjálfsögðu vill mamma ekki sjá hann, henni finnst hann ljótur. En kötturinn er ekki handa henni heldur mér. Mig er búið að langa í svona kisu svo lengi og ég get nú ekki bara fengið mér kisu þar sem ég bý nú ennþá hjá ma og pa. Þannig leið og ég er flutt að heiman þá ætla ég að fá mér svona kisu. Einnig ef þið hafið einhver ítök með gömlu þá megið þið alveg reyna að samfæra hana um að ég megi fá hana Bitu litlu:)
Annars þá er ég að fara í matarboð til Heiðrúnar í kvöld og svo í afmæli til Kristínar á Laugardaginn þannig það er nóg að gera um helgina.
Reddið mér þessum ketti:) :)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahah ég gat ékki hætt að hlægja þegar ég sá þetta. Bara fyndið.
En þetta er samt ágætis mynd af honum, spurning hvort að Guðrún komi með eh áskorun um myndir af honum.
Hann getur ekki verið minni maður en Duhamel...

Nafnlaus sagði...

Ég skora einlæglega á þig að finna mynd af honum í snjógalla - eins þykkum og hægt er ;) Og lambhúshettu helst líka!!
Bara keep the clothes on í guðanna bænum!
Það eða mynd af honum í sleik við annan karlmann. Massív áskorun!

Ps. er Edward Norton búinn að vera hönk vikunnar? Og mér finnst ansi fáir svartir gæjar búnir að vera - ég sem hélt að þú værir svo mikið fyrir svoleiðis ;)
Og yngri bróðirinn í Heroes - hann er líka sætur, reyndar eldri líka en kannski full gamall. Og Antonio Banderas á yngri árum YUMM!

Nafnlaus sagði...

Á ekkert að koma með nýja mynd?
En allavega eigum við að fara í bíó í kvöld??