mánudagur, júlí 23, 2007

Notaleg helgi


Já vitir menn, ég var bara heima alla helgina og gerði ekki neitt. Var úti að hjálpa mömmu og pabba í garðinum og fór á miðaldasýninguna á Gásum og svona en annars var ég bara heima að slappa af og horfa á sjónvarðið. Það var helvíti gott og ég verð að segja að ég er bara nokkuð hress fyrir vikunni. Það eru 33 dagar þangað til ég er hætt að vinna og það eru 35 dagar þanngað til ég fer í skólann. Vá mig hlakkar ekkert smá til að byrja aftur í skólanum.

Síðan var ég að spá í ágúst að hafa smá partý í sveitinni og bjóða krökkunum í bekknum og svo bara öllum sem vilja koma, vinum og ættingum. Ég held að það yrði geðveikt gaman.

En þessi ásorunar keppni er ekkert erfið og ég er ekkert smá góð í henni. En hún er skemmtileg. Vonandi verður þessi vika fljót að líða eins og síðasta vika því ég nenni ekki vinna lengur, mig langar bara að byrja í skólanum aftur. En þetta er alveg að verða búið.

Annars er ekkert merkileg að frétta, var bara róleg um helgina og stóð við loforðið mitt að fara í þynkumat með Heiðrúnu, sem við samhryggjumst öll með því bíllinn hennar er bilaður. En já bara gott að frétta og lítið að gerast. Heyrumst

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já þú rúllar upp þessum áskorunum. Guðrún verður að fara að tuffa í lófana og gera þær erfiðari.
En ég þakka góðar samverustundir um helgina.
Hlakka til að sjá myndina á morgunn... úúúhh er svo spennt.