föstudagur, júlí 20, 2007

N.E.R.D.


No one ever really dies. Það er massa hljómsveit og hann Pharrell Williams er meðlimur og eins og sést þá er hann helvíti myndarlegur. Hann mun vera næst hönk vikunar og ég ætla að reyna að hafa mynd á hverjum degi núna, en það er búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki haft tíma til að vera að blogga. Það verður samt lika örugglega mikið að gera í næstu viku því þá fer Arna í frí en ég skal gera mitt besta. Annars er þetta sumar alveg að verða búið og ég hef ekki gert neitt að viti og geri líklega ekki en þannig er það nú bara.

Það er komin helgi og ég ætla bara að vera heima og slappa af og jafnvel klára að mála húsið heima og svona, allavega ekkert djamm um þessa helgi. Þessi vika er búin að vera ekkert smá fljót að líða og ég held það sé vegna þess að ég fór á date með Heiðrúnu og svona, maður verður að gera eitthvað til að tíminn líði. Svo ætla ég að fara á Nings í dag og fá mér hádegismat og slappa af í smá stund, það er tilbreyting í daginn:)

Svo er ég að fara í afmæli í kvöld til Mínu frænku og fá mér kökur og svona, það verður gaman að sjá familyuna. Annars er þetta allt sem gert verður um helgina og borða þynkumat með Heiðrúnu eftir Reunionið hennar:) En nóg í bili, góða helgi og heyrumst.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nú erum við að tala saman líst vel á þennan og ég bíst við því að kíkja oft á dag á þennan ;)
Gott að einhvern langi til að borða þynnkumat með mér, mig vantar allavega far til að borða hann, þar sem focus #$%&&#" gaf upp öndina, en verið alveg róleg ég ætla ekki að halda kertafleytingu í minningu hans, eins og virðist svo móðins í dag.

Nafnlaus sagði...

I'll be back!

Nafnlaus sagði...

HA??!! gaf focus upp öndina? Var þetta ekki nýr bíll???

En áskorun - vil fá mynd af þessum að reykja jónu eða að gera svona niggaz east side eða west side merki með höndunum ;)