þriðjudagur, júlí 10, 2007

Það er ekki beðið um lítið


Síðasta áskorun var sú að ég myndi finna mynd af honum Josh nöktum, og ég verð að segja að ég hafi staðið mig nokkuð vel, ekki satt? En þá er ég að sjálfsögðu að tala um myndina hægra meginn, hin var bara með upp á gleðina. Þetta hefði komið upp í gær ef það hefði ekki verið svona mikið að gera hjá mér en svona er þetta bara stundum.

María mín ef þú lest þetta þá verðum við að fara að hittast heima hjá henni Völu og hafa spjall. Maður má nú ekki alveg gleyma skólafélögunum.

Annars er bara þokkalegt að frétta, er reyndar nett slöpp með smá hausar og svona en vonandi er það bara eitthvað sem líður hjá þegar líður á daginn. Hef í raun ekki mikið að blogga um þessa stundina þannig þá er bara best að hætta og leifa myndinni að tala sínu máli:)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég sé nú ekkert hvort hann er í sokkum eða ekki ;)

Nafnlaus sagði...

Það sést allavega að hann er með brækurnar á hælunum.

Nafnlaus sagði...

þá er hann pottþétt í sokkum, strákar fara alltaf/langoftast síðast úr sokkunum, afhverju?