
Já það var nú gaman að kíka í neglur til hennar Birnu í gær, hún er að fara til Spánar, ég var að spá í að vera í töskunni hjá henni. Annars líst mér ekkert lengur á þessa versló, það er bara spáð rigningu alla helgina nema í Reykjavík. Ekki gott og vonandi breytist spáinn þegar líður á vikuna. Annars er bara allt gott að frétta og ég er að fara í smá frí sem ég er búin að þrá lengi og þegar það er búið þá eru bara 2 vikur í skólann. Vey get ekki beðið. Ég var reyndar að spá í að það þarf að halda smá upphitunar party hjá bekknum mínum áður en við byrjum í skólanum. Það yrði geðveikt. Vonandi sér Anna bara um það.
En Gugga mín ég er nú bara sammála þér með hann Stuart Townsend, hann var ansi myndarlegur og vel þess virði að kíkja á myndir af honum. En endilega haldið áfram að koma með tillögur um Vesló hönkinn. Hann verður að vera djúsí. En Gugga ertu að fara suður bráðum? Ég vissi það ekki, hvenær ferðu og gangi þér vel í prófunum.
Ég er ekki tilbúin að setja mynd af honum að kissa Jessicu því ég sé hann ennþá með henni Cameron, hún er svo miklu sætari en Jessica. Vá talandi um að taka niðurfyrir sig. Ég held að ég haldi bara áfram að setja fallegar myndir af þeim, sem mér finnst flottar og vonandi ykkur. Jæja er þá ekki komin tími til að hlusta á veðrið og krossleggja fingurnar fyrir góðu veðri. Bæ í bili.
6 ummæli:
Ég verð svo glöð í hjartanu að sjá þennan hönk, líst vel á hann.
Hvert er gellan að fara í frí?? hvurslags lúxuslíf er þetta...
Ég er bara að fara í langt versló frí, ekkert merkilegt fékk mér bara tvo daga í viðbót við helgarfríið. Svo ég geti verið í sólbaði já eða ljósum:)
Gott með þig. ;)
Eru nú áskoranirnar orðnar til að skorast undan þeim?
Til hamingju með fríið.
Annars sá ég einn sætann - hann heitir stephen coletti og lék clean tean sæta strákinn í One Tree Hill. Soltið ungur en það er bara ROKK.
Ég heimta nýja mynd af JT fyrir helgi, helst í dag...
En vona að þú sért búin að finna eh sem getur staðið aleinn upp alla helgina.
Hlakka til laugardagsins.
Skrifa ummæli