miðvikudagur, júlí 25, 2007

1408


Fór með Möttu frænku í bíó í gær á 1408 og ég verð að segja að ég varð bara nett hrædd það var allavega alveg nóg af bregðu atriðum. Allaveg tók Matta og öskraði nokkrum sinnum og ég heldi ég líka. Allaveg þá mæli ég með þessari mynd, hún er góð afþreying. Gerði svo ekki mikið meira í gær en að horfa á tv og borða nammi. Magnea lét mig borða helling af nammi í gær og ís:)

Verð samt að segja að þessi vika er ekki að líða alveg jafn hratt og ég vildi óska mér en þetta þokast. Ég verð bara að halda áfram að gera eitthvað skemmtilegt á kvöldin eins og ég er búin að vera að gera. Það er nebblega búið að vera helvíti gaman þessa vikuna, búin að taka spilakvöld og fara í bíó og hvað á þá að gera í kvöld?

Annars er ég bara að vinna og láta mér leiðast þangað til um versló og þá ætla ég í ferðalag og skemmta mér. Svo fékk ég rosa góðar fréttir í gær sem ég er mjög ánægð með ef þær ganga upp en best að vera ekki að ræða það of mikið fyrr en þær eru ákveðnar. Bæ í bili

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það eru engar takmarkanir fyrir því hvað maðurinn er töfffff...
Ohh ég er gekt forvitin að vita hvaða fréttir þetta eru og vill endilega fá að vita sem fyrst.
Ég er að fara í gönguferð hjá Kristnesi kl 17:15 með vinnunni og makar mega fara með, þannig að ef þig langar með ertu velkomin. :)