þriðjudagur, júní 19, 2007

Vinni vinn


Veit ekkert hvað ég á að segja, hef voða lítið að segja í dag. Fór í klippingu í gær það var gaman og fékk mjög flotta klippingu. Svo var ég bara heima og horfði á tv og var í nettri fýlu yfir því að allir uppáhalds þættirnir mínir eru búinir í bili. En svo er það þannig að ég verð að fara í bíó að sjá Hostel 2 en það er bara spurning hver vill koma með mér. Þetta er nú ekki myndi sem alla lagar að sjá. Ég finn út úr því. Annars í gær þá eignaðist ég mynd sem mig er búið að langa að eignast í svona 5-10 ár. Þetta er bara ævintýria mynd sem ég man alltaf eftir sem mér fannst æði og nú á ég hana. Bara til að gera ykkur forvitin þá er ég búin að ákveða hver næsta hönkið á að vera og verð að segja að hann er bara nokkuð myndarlegur þó ég segi sjálf frá.

Hvað er með þessa þoku alltaf, ég hélt að það ætti að vera geðveikt gott veður í þessari viku svo ég geti byrjað að mála húsið heima að utan en ég nenni þvi ekki ef það er engin sól. Já og svo er það helgin sem er framundan það eru eingin plön fyrir hana nema að vera bara í afslappelsi og hafa það gott. Fara eitthvað út með myndavelina mína og leika mér. Er því miður ekki búin að vera nógu dugleg að leika mér á hana upp á síðkastið en fer að breyta þvi. Nóg komið af bulli bæ.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er sko til í að fara á Hostel 2 með þér. Ég var í sömu sporum og þú og fann engan til að fara með þar til núna...

Nafnlaus sagði...

ÉG myndi einmitt segja nei ef mér væri boðið - treysti mér ekki í svona ógeð.
You are sick sick people!! ;)
iii nei dsjóg.

Hvernig væri að mynda nýja klippið og skella því á síðuna!