
Tónleikarnir eru reyndar ekki fyrr en í september en mig langar geðveikt að fara og er bara að spá í að skella mér. Ef þið vitið ekki hver Cris Cornell er, þá skal ég segja ykkur það, hann er sögnvarinn í Audioslave og söng titillagið í nýju James Bond myndinni, hann er æði. En annað þá fór ég í bíó í gær á Hostel 2 og ég verð að segja að ég er orðin ónæm fyrir svona myndum eða þá að ég var búin að búast við miklu meiru. Varð alla vega ekkert óglatt og svaf bara eins og lítið barn í nótt. Myndin The Hills have Eys er ennþá á toppnum yfir ógeðslegustu myndir sem ég hef séð. Annar var dagurinn í gær bara frekar leiðinlegur því hann ætlaði aldrei að enda.
Vá hvað ég ætla á þessa tónleika og hafa gaman af þvi. Og já svo verslaði ég mér þrífót á netinu í morgun fyrir aðeins 16,49 $ með sendingarkosnaði. Nokkuð góð verð ég að segja. Svo er ég að bjóða í tvær linsur en það er ekki að ganga vel allir alltaf að hækka og hækka nenni því ekki. En kannski verð ég happinn.
Jæja þá var denni að mæta með fullt af reikningum þannig best að fara að vinna ekki satt:)
2 ummæli:
Þú ert bara að verða aðal ljósmyndarinn norðan heiða!! Maður veit sko hverju maður slær saman fyrir í þrítugsafmælisgjöf handa þér á næsta ári.
En hey - þetta sem ég talaði um við þig fyrir nokkrum vikum er að ganga í gegn, hef samband mjög fljótlega.
Vúhú, hlakka endalaust til að fara á tónleikana...
Skrifa ummæli