miðvikudagur, júní 27, 2007

Miðvikudagur, hvaða dagur?


Einmitt ég verð að segja það að miðvikudagur er enginn dagur, ef ég má vitna í hann Joey vin minn. Það gerist ekkert skemmtilegt á miðvikudögum. En annars er þessi dagur alveg ágætur ekki jafn slöpp og í gær en er núna með feituna á mjög háu stigi. Ekki að fíla þetta með feituna þannig þá er það bara megrun og byrja aftur í danska og fara að hreyfa sig. Heiðrún eða Brynja ef þið viljið koma út að hjóla á kvöldin þá er ég til í það. Annars fer ég bara með mömmu, oj smá sorglegt. Langar að fara að fá dótið mitt sem ég pantaði á ebay en verð víst að slaka á þetta tekur víst allt sinn tíma, er bara ekki mjög þolinmóð þessa dagana.

Annar á þessi helgi að vera afslappandi en ég held ég nenni því ekki, verð held ég að fá mér feitt í glas og slappa vel af og gera ekki neitt nema vera þunn:) Það er rosa gott ef maður spáir í því, því þá er maður bara heima að gera ekki neitt annars er maður alltaf að hugsa ég ætti nú að vera að gera eitthvað núna annað en að hanga og horfa á TV. Þannig best að detta bara í það:)

Annars er ekkert meira að frétta er ekki einu sinni búin að hugsa það hver næsti hönk á að vera þannig liggur á mér þessa dagana, en finn vonandi einhvern sætan fyrir ykkur. En þangað til á morgun bæ.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já þú segir nokkuð, éger alveg til í að prófa þetta með hjólin, ef ég fæ brynju hjól lánað, því eins og sönnum íþróttamanni sæmir þá á ég ekkert hjól ;)
En það verður að vera eftir helgi, því ég er að fara suður eftir vinnu á fimmtudaginn, þér er velkomið að koma með.