fimmtudagur, júní 14, 2007

Helgin nálgast


Það fyrsta á dagskrá í dag er það að óska henni Helgu vinkonu minni til hamingju með það að hafa komist inn í ljósmyndaskóla Sissu. Ég er mjög stolt af henni fyrir að vera gera eitthvað sem hana lagar að gera. Annar er svo um ekkert að frétta af mér nema það eru allir að biðja mig að breita plönunum mínum um helgina en það bara gengur ekki, ég ætla i rafting þó ég missi af mesta djammi í heim á föstudagskvöldið. Út í allt annað en ég fór á línuskauta í gær og ég hélt í alvöru að hann Arnar ætlaði að drepa mig, ég hef aldrei verið jafn þreitt og ég var þegar ég var búin í tímanum. En þetta var nú samt ótrúlega gott fyrir egoið að ég hafi getað þetta og ég var ekki síðust í mark helur:) það skiptir mig mjög miklu.

Guðrún mín auðvitað hittumst við um helga og ég hlakka bara til að hitta þig og sjá nýjustu breyinguna, mér finnst það gaman:)

Það er frekar lítið að gera í vinnunni í dag nema hanga og fara yfir bókanir sem ég er ekki að nenna að gera en svona er nú hið raunverulega líf, ekki alltaf dans á rósum. Svo er það spurningin hvað á ég að gera af mér í kvöld, ég enda örugglega heima að horfa á TV sem er reyndar ekki svo slæmt ágætis sjónvarpskvöld í kvöd House og svona. Núna er ég samt bara að bulla eitthvað rugl. Þá er tími til komin að segja bæ og ég minni á að nýtt hönk kemur inn á morgun.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Og nú þegar þú ert farin að blogga eins og manneskja (annað en sumir sem ég þekki ;)) er ekki úr vegi að kommenta mikið og reglulega eins og síðasta sumar. Þá var nú líf og fjör og fita á gömlu!

já og by the by - útskriftin er á sunnudeginum en ekki laugardeginum svo þú skellir í þig afréttara og verður bara hress ;) Var að enda við að kaupa kíló af súttulari í gosbrunninn og þú getur bara drukkið úr honum.

og já by the by - ég verð í næsta séð og heyrt, ekki nakin reyndar en allt að því ;) nei dsjóg - ég verð í fötum og hell sexy! Það fór sko aldrei svo að maður endaði ekki á síðum slúðurblaðanna.

Nafnlaus sagði...

Já þetta er góð tímasóun að skrifa hérna inn þegar lítið er að gera í vinnuni, eða taka pásu fá öllum pésunum í peningavandræðum sem gera mann stundum gráhærðan.

Þetta minnir mig einmitt á það að ég þarf að muna eftir brunninum þegar ég fer heim...

Nafnlaus sagði...

Já þetta er góð tímasóun að skrifa hérna inn þegar lítið er að gera í vinnuni, eða taka pásu fá öllum pésunum í peningavandræðum sem gera mann stundum gráhærðan.

Þetta minnir mig einmitt á það að ég þarf að muna eftir brunninum þegar ég fer heim...

Nafnlaus sagði...

ÚBBS... þetta átti ekki að koma tvisvar :Þ
En þá lítur bara út fyrir að margir lesi síðuna ;)