mánudagur, júní 25, 2007

Helgin búin


Þetta var fín helgi, stal engu og blótaði lítið:) Nei bara að fíflast nei þetta var fín helgi gerði sem minnst og hafði það bara gott. Vann reyndar fjölskylduna í Póker eins og vanalega. Fór í sveitina á laugardag og sunnudag, verð að segja að ferðin í sveitina á sunnudeginum hafi verið betri en á laugardeginum. Hefur eitthvað að gera með Lóu, nenni ekki alveg að fara út í það núna. Svo var ég vara að leika mér að taka myndir og fíflast.
Ef þið eruð ekki búin að lesa Perez Hilton í dag þá verið þið að gera það, það eru stórar fréttir um einn af fyrrverandi Hönkum vikunar. Wentworth Miller hann er víst ekki sá sem við heldum að hann væri. En ég verð að segja að þetta kemur mér ekkert ofsaleg mikið á óvart en verð engu að síður að viðurkenna að ég er nett fúl að maðurinn er GAY!!!!!
Síðan er það spurningin ég held ég geti keypt mér tvær linsur á verði einnar og þær eru nýjar en þær kosta 30000 og svo þarf að borga tolla, á ég að tíma þessu eða ekki??? Langar rosalega í þær:)
En já hef ekkert meira að segja og hlakka bara til að fara á tónleika með Cris Cornell og svo þarf ég að finna mér helgi til að fara suður og leika mér eina helgi:)
Bæ bæ

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er að fara suður á morgunn eftir vinnu ef þig langar með.
En annars er ég hrifin af hönkinu vissi ekki að hann væri svona stæltur... það er enn betra.