
Nei ætli það en ég er allavega fróðari um það hvernig þetta allt virkar og svo er bara að æfa sig. Þetta námskeið var mjög skemmtilegt og gott ef þú varst með canon myndavél, þeir sem voru með öðruvísi vel fengu ekki alveg sömu kennsluna og þeir með canon, en engu að síður mjög gott námskeið. Rosalega mikið af upplýsingum á tveimur dögum en ég held að ég muni vera orðin rosa góð fyrir brúðkaupið hennar Heiðdísar sistir. Annars var gærdagurinn bara skemmtilegur, gerði svo sum ekki mikið en hann var fljótur að líða. Helgi og Gréta eru að laga húsið sitt fyrr útskriftina hans Bjarna frænda sem er á laugardaginn eða sunnudaginn man það ekki, en það er víst alveg hellingur eftir að gera, er þá ekki spurningin að byrja fyrr á verkinu ekki geyma það þangað til 2 vikum fyrir og byrja þá, sérstaklega ef maður er búin að vera í 6 mánaða fæðingarorlofi. En þetta er bara það sem mér finnst um málið og þarf ekkert að ræða það frekar enda verð ég örugglega ekki þarna. Verð í rafting allan laugardaginn og svo ætla ég að vera svo þunn á sunnudaginn að ég verð að vera í rúminu eða á rúntinum niðrí bæ að borða ís og nammi. Perez Hilton er ansi skondinn gaur og maður veltir því svona fyrir sér hvernig hann fær fréttirnar alltaf fyrst, hann er ótrúlegur. Ég er að fíla hann í botn.
En best að fara að vinna aftur og halda áfram að fara yfir allar þessar skemmtilegu bókanir:)
2 ummæli:
Það er nú aldeilis gott að heyra að þú sért orðinn fær ljósmyndari.
Hlakka til að sjá nýtt hönk á föstudaginn, því þá er komið helgarfrí.
HAnn er sætur en ég hef séð hann með gel-laust hár og það var ekki fögur sjón. Hann var bara average-Joe þá.
En já - suma hluti er bara ekki hægt að gera þegar maður ætti að gera þá - t.d. hefði átt að gera við þakið á húsinu fyrir meira en 5 árum síðan, það hefur alltaf lekið eitthvað. En þetta var bara ekkert á planinu hjá gamla þegar hann var orlofinu, enda fæðingarorlof ekki hugsuð til að vinna í þeim ;)
Sjáumst við þá ekkert um helgina miss rafting.is?
Skrifa ummæli