Guð sé lof að þessi vika ætlar ekki að vera lengi að líða, ég hefði ekki nennt því verð ég að segja. Já til hamingju Heiðrún með að vera búin að ákveða hvaða bíl þú villt ég er hrifin af honum og vonandi er hann í góðu lagi og allt eins og það á að vera:)Það er nú búið að nefna litla frænda minn hann mun eiga að heita Viktor Smári, ég er svo hrifin af honum nafna mínum að ég er að springa:)
Annars er svo sum ekkert merkilegt að frétta af mér, ég fann einn ágætis bíl á netinu í gær og pabbi er að tékka á öðrum. Þannig þetta er allt að gerast var hins vegar að spá í einu því það er laugardagur þegar ég á að fá bílprófið mitt, ætli ég nái í það á löggustöðina, æi ég kemst að því seinna en það eina sem ég veit er að ég er að fara að fá bílpróf og ég er svo spennt:)
Vonandi verður geðveikt gaman á djamminu um helgina ég á víst að vera allsstaðar og ég verð bara að bjarga því eða velja mér skemmtilegasta partyið og setjast þar að:) kemur í ljós.
Svo er hún Gugga mín komin heim úr Reykjavíkinni þannig ég þarf að fara að hitta hana og heyra hvernig það er að vera orðin gift kona og hætt að djamma:) nei bara að grínast það er ekki alveg orðið þannig ennþá en ef ég skertst ekki í leikin og kem gömlu á djammið þá er ég hrædd um að hún sé farinn... En nenni ekki meiru verð að vinna smá:)
2 ummæli:
Já vikan verður fljót að líða, hönkið er gott hvað getur maður beðið um meira :)
Hæ HÆ Klikkað flott síða hja þér!!;)
Enn er að flytja til ak þannig að við verdum að fara að endurtaka spilakvöld:)
Enn Gangi þér að finna þér bíl;)
Skrifa ummæli