
Hérna verð ég að segja að hann er geðveikt líkur honum Justin Timerlake, ekki satt? En já það er allt gott að frétta ég get ekki beðið eftir því að byrja í skólanum og þessir síðustu dagar ætla engan endi að taka.
Svo var ég að spá í að fara suður fyrstu helgina í sept, langar að kíkja aðeins í búðir og jafnvel kíkja á bækur í Rek, þær eru ódýrari þar en hér. En það er ekkert ákveðið, kemur í ljós í næstu viku.
Já var að spá í að fara loksins í bíó í kvöld á myndina sem ég ætlaði mér á um helgina en fór aldrei á. Vonandi er þetta jafn góð mynd og allir eru að segja. En ég tók Hostel í gær sem allir eru búir að segja að sé svo ógeðsleg, sem hún var en mér fannst hún miklu meira sorgleg, því í alvuru það er örugglega til svona ógeðslegt fólk sem borgar fyrir svona. Já þetta var ekki gaman að horfa á. En best að fara að vinna, heyrumst á morgun.
1 ummæli:
Það mætti segja að þessi maður sé kokteill af þeim myndarlegustu, hann er líkur svo mörgum. Hann hlýtur að vera gott eintak af manni.
Skrifa ummæli