Já það er einn til tveir dagar eftir af þessari viku og þá er komin verslunarmanna helgi og allir koma norður til að djamma því allt góða veðrið er hér og það verður geðveikt gaman... Annars er ég viss um að þetta verður bara eins og hver önnur helgi nema með fleira fólki sem er fyrir mér og truflar mig í umferðinni (segir sú bílprófslausa). En já ég verð að komast að þessu með með bílprófið mitt bráðum, hvar ég á að ná í það og hvernig.Já vonandi verð ég búin að finna mér bíl eftir helgi eða um helgina. Svo náttúlega vara ég alla við perrunum sem eru hér á AK þeir eru stórhættulegir:) Nei nei veit ekki hvað ég er að bulla, ég er bara að bíða eftir því að fá að vita hvað ég á að gera í vinnunni, annars er ég ekki að gera neitt.
Ég er ekkert búin að sjá hann frænda minn í þessari viku en vonandi sé ég hann bráðum hann er svo mikið krútt. En það er spurning hvað verður gert á morgun og verður það ekki alveg rosalegt.... bæ þangað til á morgun...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli