fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Það er að koma að þessu

Já það eru ekki nema 2 dagar þangað til ég fæ bílprófið mitt og þá má ég keyra nýja bílinn minn, ég get varla beðið ég er svo spennt. Já svo verð ég ein heima alla næstu viku því mamma er að fara í sumarbústað og ég þarf að vinna síðustu vikuna mína áður en ég byrja í skólanum. Nenni ekki að vinna meira vil byrja í skólaum núna....
Æi tímin líður svo hægt þegar maður er að bíða eftir einhverju af hverju og núna er ég að bíða eftir tveimur hlutum að fá bílprófið og byrja í skólanum.
Annar var ég að fá hugmynd um daginn þegar ég var með henni Bigittu vinkonu minni, við ætlum að fara saman til Bandaríkjana og gera heimildarmynd um þá innfæddu, það verður fjör hitta slatta af svona trayler park tras. Ég held að þetta eigi eftir að verða ekkert smá gaman ef þetta gengur upp þar að segja.
Annars er ekkert að frétta nema bara endalaust tuð um þið vitið hvað... En ætli ég reyni ekki að halda áfram að vinna það verður nóg að gera hjá mér á morgun og í næstu viku þegar mamma verður farinn og ég þarf að vinna hennar vinnu líka það er ekki gaman því allir halda að maður getu bara unnið endalaust og gert allt sem allir vilja. En ekki meira tuð heyrumst á morgun þegar það er bara 1 dagur til stefnu:)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég vissi ekki að maðurinn væri svona mikill kroppur, hélt alltaf að hann væri meira svona skinny gaur,.
En hvað er með Guðrúnu... það þýrðir ekki að vera með yfirlýsingar um að ætla að commenta við hverja færslu og láta svo ekki sjá sig á síðunni..

Nafnlaus sagði...

Haha þetta var nú skondið...tókst mig alveg þarna