mánudagur, júlí 31, 2006

Viggo Mortensen


Já eins og einhver sagði forðum daga, betra er seint en aldrei og ég var að spá í að hafa þennan fallega mann sem hönk vikunar. Hann er reyndar bara myndarlegur þegar hann er pínu skíktugur og illa til hafður (að mínu mati). En það er nú ekki búið að ganga allt of vel síðan ég kom heim, mér tókst það sem líklega engum mun takast nema mér, það var það að ég stakk A4 blaði í augað á mér og er búin að vera með nettan lepp síðan á miðvikudaginn....
En annars er bara allt gott að frétta, ég er búin að komast að því hvað litli frændi minn á að heita en ég ætla ekki að segja það stax. Það á að vera leindó aðeins lengu. Já ég er nú ekki einu sinni að fatta að það er að koma verslunarmannahelgi og það kemur hitabilgja á sama tíma þannig að þetta verður geðveikt góð versló.
Ég get ekki beðið það veruður svo gaman, svo var ég að spá í að kaupa mér bíl og vonandi verður hann flottur, pabbi er að hjálpa mér loksins eftir að hafa streist á móti í nærri 2 mánuði. Þannig vonandi verð ég komin á bíl þegar ég fæ bílprófið mitt þann 19 ágúst. Já þá verður sko gaman bara eins og að eiga auka afmælisdag, en nóg í bili bæ

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já maðurinn er ansi fine, en bestur smá skítugur eins og í lotr. En nú er ég búin að ákveða bílinn og það er svo mikið sem Ford focus, ánægð með að vera búin að ákveða þetta því ég var að verða geðveik á þessu :)
En mig hlakkar til að sjá meira af þessum hönk.