Já þá er ég komin heim frá Sviss og það var geðveikt gaman og ógeðslega heitt allan tíman. Þetta var samt svo gaman við skoðuðum alveg helling og fórum í geðveikan aqva park og sáum kastala og svona svo var verslað smá:) ekki mikið bara smá...Ég er búin að vera alveg tóm í morgun og var búin að gleyma þessu bloggi og síðan vissi ég ekkert hver átti að vera hönk vikunar, þannig ég ákvað að hafa bara engan hönk vikunar heldur bara einn og einn þessa vikuna og ef það er einhver sem ykkur langara að sjá hérna í þessari viku þá er bara að setja inn óskir.
En þetta er hann Chad Michel Murray sem leikur Lúkas í One tree hill. Hann er allt í lagi enn ekkert rosalega flottur en það er allt í lagi er það ekki svona meðan maður er að ná sér eftir allt ferðalagið.
Ég verð meira að segja að segja að ég er búin að vera rosalega þreytt eftir þetta því við löbbuðum rosalega mikið í þessari ferð og það er rosalega erfitt að labba í 30 til 35 stiga hita (mæli ekki með því) En það gekk allt eins og í sögu í þessri ferð og allir voru bara vinir, sem er mjög gott enda þakka ég þónokkuru magni af brennivíni fyrir það:) En er að fara í mat heyrumst
3 ummæli:
hehe..... akkuru ætti fólk ekki aðvera vinir í þessari ferð?
Ja það getur nú margt gerst þegar 4 stelpur ferðast saman....
Já svo við nefnum bara rafting ferðina góðu...
En ég bara veit engan hönk er bara alveg tóm líka en hvað hét gæjinn sem var í football hooligans...Vin Diesel væri ég til í að sjá hér líka...(allt í einu kom andinn yfir mig)
Skrifa ummæli