þriðjudagur, júlí 11, 2006

Johnny Depp

Já hann Johnny Depp er fæddur þann 9 júní 1963 í Kentuky í Bandaríkjunum. Hann er 1,78 cm á hæð (hélt hann væri minni). Fyrsta myndin sem hann lék í var Nightmare on Elm Street og hefur síðan leikið í alveg helling af myndum síðan og nú síðast í Pirates of the Caribbean sem er ein af bestu myndunum sem hann hefur leikið í (að mínu mati). Hann hefur nú verið við kvennmennina kenndur eins og Kate Moss og Winona Ryder en er nú giftur söng og leikkonunni frönskuVanessa Paradis og eiga þau saman tvö börn þau Lily-Rose Melody og Jack. Hann hefur nú gert margan skandalinn í gegnum ævina og var sakaður um að selja eitulyf á klúbbnum sínum The Viper Room þar sem vinur hans River Phoenix dó fyrir utan klúbbin úr ofstórum skammti. Þegar hann var trúlofaður Winona þá lét hann tattoa á sig Winona forever en þegar þau hættu saman lét hann taka n og a af svo eftir stóð "Wino forerver". (Fíla þetta)
Já það er af nógu að taka með þennan mann hann hefur gert held ég allt sem manni getur dottið í hug.
En nú eru bara 3 dagar þangað til ég fer til útlanda og ég er að springa úr spenningi. Er að fara í klippingu í dag eftir hádegi og gera mig sæta, nenni ekki að fara aftur í vinnuna þegar ég er búin í klippingu en kannski þarf ég að gera það það eru svo fáir í vinnuni. Annars er lífið dásamlegt og svo gaman að vera til þessa daga....

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er nú gott að heyra að lífið sé yndislegt þessa dagana hjá þér.
Nokkrir dagar í hitann... Er orðin svo spennt að ég vakna bara hress á morgnanna og tel niður.

Nafnlaus sagði...

NEi ég veit bara að Matta var búin að tala við Elvar um að keyra okkur, þannig að það er best að þið talist saman um skutl, ég og vittó erum bara bíllausir aumingjar ;)