Það er allt að gerast, við erum að fara út á morgun og það er allt of langt þangað til. Þessi síðasti vinnudagur ætlar að vera alveg helvíti lengi að líða alveg eins og ég vissi, finnst ég vera búin að vera hér í heilan dag en er víst bara búin að vera í klukkutíma... ekki gott.En vá hvað þessi maður er sexy ég vildi að ég væri að fara út að hitta hann. Þessi mynd minnti mig á það þegar hann lék í Blow hann var svo flottur í þeirri mynd að það var ekki þurt sæti í bíóinu. Svo fékk ég smá ábendingu um daginn, að ég hefði gleimt að tala um bestu myndina hans eða Cray Baby, það er klassa mynd.
Já ég er að verða tilbúin búin að þvo öll fötin sem ég ætla með og búin að strauja og brjóta saman og svona það eru eiginlega bara litlu hlutirnir sem eru eftir, tannbusti og svonleiðis. Og að sjálfsögðu að fara aðeins í ljós áður en ég fer, var að spá í að fara í fyrramálið áður en ég fer, já og svo fer ég vonandi í flugvél geðveikt þarf ekki að sitja í bíl í 4 til 4 1/2 tíma, það er það leiðinlegasta sem ég geri sérstaklega þegar ég er spennt og þarf að drífa mig eins og ég mun vera á morgun. Þetta skal vera svo skemmtileg ferð og ég ætla að sjá um að skemmta mér sjálf allan tíman, því ég er best í því, ekki satt. Jæja var að spá kannsi verður þetta síðast bloggið í þessari viku og það kemur líklega lítið í næstu þannig hafið það gott og á meðan ég er í burtu. Bæ
1 ummæli:
Ég segi bara góða ferð og have fun ;)´
Það er eins gott að næsta hönk verði gorgious, finnst þú hefur svona góðan tíma til hugsa hver það á að vera.
Aldrei að vita að við finnum hann bara úti og þú tekur smá myndasyrpu á hann ;)
Skrifa ummæli