þriðjudagur, júlí 25, 2006

Engin mynd í dag

Já það er engin mynd í dag það er eitthvað bilið. En það gerir morgundaginn bara meira spennandi, ekki satt. En það er alveg ágætt að vera komin heim, er að spá í að kaupa mér bíl áður en ég byrja í skólanum en svo fæ ég svona bakþanka og fer að hugsa um allt djammið sem ég get stundað fyrir peningin, en það þýðir víst ekki að hugsa svona. Annars er bara allt gott að frétta nema ég er eitthvað farinn að missa minnið en óþarfi að fara út í það hér. Annars á þetta að vera frekar ömurleg vika því það er bara þoka allan daginn, það er ekkert smá leiðinlegt og kalt. Þegar það er svona kalt þá vildi ég að ég væri ennþá í útlöndum í hitanum sem var að grilla mig. Heiðrún var að prufa nýjan bíl í gær vonandi að henni lítist á hann og jafnvel kaupi sér hann:) Það er svo margt sem ég ætla mér að gera áður en ég byrja í skólanum og það er alveg að fara að byrja skóli á ný. Tíminn líður allt of fljótt. En best að fara að vinna smá

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

útilega, útilega sjúddi ralli rey hey!!

Nafnlaus sagði...

Velkomin aftur á klakann ;) gvöð hvað ég skil þig með þetta gera stöff áður en skólinnbyrjar! Er ekki alveg að kaupa það að það sé bara mánuður eftir í fríi...