Jæja vonandi er þessi betri. Þetta hönk heitir fullu nafni Christian Charles Philipe Bale er kallaður Chris og er fæddur 30 janúar 1974. Hann er 1,83 cm á hæð og ef ég skil rétt er hann fæddur í Bretlandi, nánar tiltekið Wales. Hann hefur leikið í fullt af myndum, eins og American Psycho, Little Women og að lokum núna nýlega í Batman Begins. Hann var mjög flottur í henni að mínu mati. Afi hans lék staðgengil John Wayne í tveimur myndum í Afríku. Hann kynntist konunni sinni í gegnum Winona Ryder, hún var persónuleg aðstoðar kona hennar. Hann á þrjár systu og mamma hans er fyrrum sirkus dansari.... Faðir hans var flugmaður. Hann eignaðist sitt fyrsta barn, stelpu, 27 mars 2005.Já þetta er bara nokkuð gott. Verð að segja að ég er að deyja úr hungri og verð því að fara og drífa mig í mat áður en ég dey. En það er þáttu sem ég verð að mæla með við ykkur og það er þáttur á Sirkus sem heitir Supernatural... geggjaður, ekkert smá spennandi stundum en þá er ég farinn bæ.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli