fimmtudagur, júní 29, 2006

Meira blogg


Já þið hélduð kannski að það yrði enginn hönk í dag, en nei það myndi ekki ganga upp því maður verður að fá sinn skammt af sexy hvern dag og ekki gerist það í vinnunni. Já ég er ekki að grínast það er til endalaust af myndum af þessum manni og hann er alltaf jafn sexy, jafnvel þegar hann er að reykja. Það er magnað hvað þessi maður er sexy maður verðu aldrei þreittur á að horfa á hann.
Annars var ég geðveikt dugleg í gær fór heim úr vinnunni kl 2 og þreif þá húsið fyrir mömmu og fór svo kl 4 til Heiðdísar og var að mála til kl 7. Sofnaði svo bara snemma. Það var helvíti fínt. Ég vit ekki hvað á að gera um helgina nema það að horfa á fótbolta á fösudaginn og laugardaginn svo verð ég bara að spila þetta eftir eyranum og gera eitthvað skemmtilegt meðan það er enginn fótbolti. Það er að vísu eitt sem er að bögga mig þessa helgi og það er peningaleysi ég er orðin svo fátækur þessa síðustu og verstu daga. En ég er líka að spara fyrir ferðinni minni ég get ekki beðið eftir að fara bara að segja ykkur það einu sinni enn þið hafið gaman af því ekki satt. En best að fara að þykjast vinna smá:)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Maðurinn er með eindæmum myndarlegur og kemur á óvart að hann sé ekki samkynhneigður (því það er synd hvað margir myndarlegir eru það)
Hlakka til að sjá hönk næstu viku, næstum því jafn spennandi og prison break.