fimmtudagur, júní 29, 2006

Kisarnir mínir
















Já þetta eru kettirnir mínir, sá fyrri heitir Snúður en ég kallaði hann alltaf Grúber, veit að það passar ekki beint saman en það passaði við hann. Hann var svolítið styggur kisi en það var bara í nösunum á honum en hann var alger veiði kisi og kom heim með fullt af fuglum og þegar þeir voru farinir þá kom hann bara heim með eitthvað annað, rusl, sokka og dót. Það var keyrt á hann Grúber annan í páskum. Þá fékk ég mér nýjan kisa eða kisa sem vinkona mín átti og ætlaði að lóa. Hann hét Óféti en svo kallaði ég hann Klóa. Hann var alger rageit og enginn veiði kisi, hann vildi bara láta kela við sig allan daginn og sofa. Það var keyrt á Klóa á laugardaginn 24 júni. Já þetta kannski sínir að ég á ekki að eiga kisu, því þeir dóu með tveggja og hálfsmánaðar milli bili. Já ég verð kannski bara að fá mér inni kisa eða bara að sleppa þessu.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jamm, mér finnst þetta sorglegt og sendi þér mína samúðarkveðjur. Ég og klói vorum vinir (mátti allavega stríða honum án þess að hann væri fúll) hehe :)