þriðjudagur, júní 27, 2006

Já hvar er rigninginn!!!

Já ég veit eitthvað skrítin að biðja um rigningu, en það er ekkert skrítið það er orðið svo þurt að það er alltaf sandrok, sem er ógeðslegt að labba í. En það er nú svo sum ekkert búið að vera að gerast, hitti hana Guggu mína í gær hún er ekkert smá spennt fyrir helginni, hún er að fara suður að hitta kærastan. Annars er rosalega lítið að frétta, ég er eiginlega bara dottin inn í það að geta ekki hugsað um neitt annað en það að ég er alveg að fara út.... spenna.
En hvað er með þennan gaur hann er svo svalur, ég var að skoða af honum myndir og það skiptir eiginlega ekki máli hvaða mynd maður tekur af honum því hann er alltaf jafn svalur:) jummmm
Já ég ætlaði að blogga smá til heiðurs kisunum mínum í gær og þá bara virkaði netið mitt ekki og ég gat ekki einu sinni sent mér myndir í vinnuna, reyni að redda þessu í kvöld:)
En já svo er uppáhalds þátturinn minn í kvöld Supernatual, má ekki missa af honum. Það er eins gott að hann verði spennandi í kvöld. Svo er Prison Break líka og ekki má missa af því, nei það er næst síðasti þátturinn í kvöld, mæli með að allir horfi á tvið í kvöld. En best að vinna smá fyrir hádegi...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Oh ég er svo ánægð með það að það sé enginn rigning, er samt á suðurleið um helgina og vonandi verður ekki rigning þar... vittó má fá hana í láni um helgina.
Ég get einmitt ekki heldur hugsað um neitt annað en ferðina og er að monta mig við alla að ég er að fara. (eins gott að hún verði vel heppnuð)