
Já nú er loksins eitthvað farið að gerast í þessari heimsmeistara keppni í fótbolta. Mitt lið Argentína er að fara að spila við Þýskaland á föstudaginn og svo er það leikur Englendinga og Portúgala sem verður mjög spennandi og þá verður herra myndarlegur að vera með hann Christian Ronaldo. En ég er búin að spá því að Argentína vinni þessa keppni, eða ég vona það:) Ég er geðveikt búin að fá mér frí í vinnunni seinnipartinn á föstudaginn til að horfa á leikinn og svona það verður fínt.
En annars er svo sum ekkert að frétta, fann þessa fallegu mynd af hönki vikunar (vel ungur á henni).
Þátturinn í gær um Supernatural var ekki góður þannig að ef þetta var fyrsta áhorf þá er það ekki að marka og mæli ég með því að að verði horf aftur í næstu viku. Prison Brek er allveg að fara með mig og ég er svo spennt að vita hvernig þetta endar allt saman, sleppa þeir eða ekki???
Já og svo verð ég nú að segja að ég er farinn að hlakka pínu til að byrja aftur í skólanum, veit það er glatað en það er svo gaman í skólanum mínum og svo sakna ég allra vina minna, geðveikt asnalegt að vera með ákvðnu fólki alla daga og svo allt í einu vera ekkert með þeim, það er vírd. En nóg í dag bæ
1 ummæli:
Já ég gat varla horft á prison break það var svo spennandi, fékk næstum því magasár yfir þessu öllu saman og veit ekki hvernig ég á að haga mér þangað til næsta þri. get ekki beðið.
Skrifa ummæli