föstudagur, júní 23, 2006

Það er komin helgi

Já það er komin helgi og ég er búin að laga bloggið mitt þannig að hver sem her getur commentað á það sem ég er að skrifa sem var í raun ekki hægt áður nema að signa sig inn og eitthvað, en það er allt búið. Já það á nú bara að vera helvíti gott verður um helgina og ég er að spá í að sofa bara meiri partinn af henni, ég veit ekki af hverju ég þarf ekki að sofa á nóttuni og svo er ég alltaf geðveikt þreytt meðan ég er í vinnunni....
Já svo var brotist inn til vinkonu minnar í gær bara um hábjartan dag og öllum tækjum stolið, tölvunni, harðadisknum, flakkaranum, myndavélinni og svoleiðis. Ekki gott... Og það verst við þetta allt er að það var gert um hábjartan dag og þeir voru svo klári að þeir voru búnir að ganga í hús og spyrja fólk um siggó ef það svaraði og það svaraði enginn hjá vinkonu minni þannig að þeir skelltu sér bara inn. Já ég segi ekki annað en muna að læsa segi ég, muna að læsa... Já það er víst búið að ákveða hver verður næst Hönk vikunar, hlakka til að skrifa um hann og sjá fallegar myndir af honum. En þetta hönk á víst einn dag eftir enn sem verður upp fullur af ævintírum helgarinnar minnar sem vonandi verður jafn góð og verðrið laug að mér í gær, en eigiði góða helgi og hafið það gott.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Get nú ekki látið eins og Guðrún sé sú eina sem commentar, og set því nafn mitt á spjald þessarar síðu.
Hér er meira að segja hugmynd að hönki vikunnar, nip tuck gæjinn hann er uber hot!!!